


1 meðalstór laukur
600 gr kartöflur
400 gr sellerírót
4 msk olía
salt
pipar
2 tsk rifinn sítrónubörkur
1 búnt vorlaukur
Laukurinn skorinn smátt og mýktur í heitri olíu í potti. Kartöflurnar og sellerírótin afhýddar og skornar í teninga og bætt saman við. Steikt áfram við vægan hita þangað til grænmetið verður meyrt. Saltað og piprað efitr smekk og sítrónuberkinum hrært saman við.
Vorlaukurinn saxaður smátt og bætt út í rétt áður en borið er fram.