Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Ódýrir réttir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Kartöfluklattar


Lýsing

Standa sem sér réttur eða meðlæti með öðru.

Hráefni

í stuttu máli
Grænmetisréttir
Ódýrir réttir
Fjldi
10
500 gr kartöflur, hráar
100 gr laukur
1 egg
3 msk hveiti
1/2 tsk salt
1/4 tsk kúmenfræ
svartur pipar
olía til að steikja úr

Leiðbeiningar

Kartöflurnar eru rifnar gróft, settar í sigti og safi pressaður úr þeim, ekki þó þannig að þær verði alveg þurrar.
Settar í skál og gróft rifnum lauknum ásamt afgangi af hráefnum hrært varlega saman við. Kúmenfræin marin aðeins með hnífsblaði áður en þau eru sett saman við.
Olían hituð á pönnu og bakaðir klattar við meðalhita þangað til þeir eru gullnir og fallegir á litinn. Ágætt að dreypa smávegis af olíu yfir þá þegar steikingu lýkur.

Bornir fram með kotasælu m/hvítlauk, soðnum bygggrjónum og smáttsaxaðri agúrku.