Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Eftirréttir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Kókosís


Lýsing

eða ísterta, alveg einstaklega góð.

Hráefni

í stuttu máli
Eftirréttir
Skammtar
8

Botn
4 eggjahvítur
2 dl strásykur
1 dl kókosmjöl

Ís
4 eggjarauður
1 dl strásykur
1/2 l rjómi 
100 g gott súkkulaði, t.d. Daim,Toblerone eða dökkt súkkulaði með appelsínubragði 

Leiðbeiningar

Botn
Eggjahvítur og sykur þeytt vel saman og kókosmjölinu hrært saman við.
Sett í vel smurt smelluform (stórt), strá má aðeins af kókosmjöli í formið áður en hræran er sett í það.
Bakað við 140° hita í 50-60 (e. stærð formisns).

Ís
Eggjarauður og sykur þeytt vel saman. Rjóminn þeyttur sér og eggjahrærinu blandað vel saman við hann.
Súkkkulaði saxað smátt og blandað út í. 
Blöndunni hellt yfir kaldan botninn og sléttað yfir. Lokað með plastfilmu og fryst.

Uppskrift: Hrefna Guðmannsdóttir.