Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Aðalréttir annað
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Kútmagar


Lýsing

Það getur verið skemmtilegt að endurvekja gamla íslenska rétti.

Hráefni

í stuttu máli
Aðalréttir

kútmagar (reikna með 2-3 á mann)
þorsklifur
rúgmjöl
salt
smávegis hvítur pipar ef vill
vatn

Leiðbeiningar

Gert er ráð fyrir að fá hreinsaða og tilbúna kútmaga.

Lifrin er lögð smástund í kalt vatn og himnan hreinsuð af.

Aðferð 1:

Kútmagarnir skolaðir vel úr köldu vatni.
Salti stráð yfir lifrina, látið bíða um stund og hún skorin í bita og kútmagarnir hálffylltir.
Lokað fyrir (bundið) með seglgarni. Suðan látin koma upp á vatninu, saltað og kútamagarnir látnir þar í. Suðan látin koma upp aftur og kútmagarnir pikkaðir með grófri nál á meðan.
Soðnir undir loki í ca 45-50 mínútur.

Aðferð 2:
Eins farið með lifrina, en hún hökkuð eða stöppuð og rúgmjöli, salti og pipar (ef vill) bætt saman við. Hrært þangað til úr verður þykkur grautur. Sett í kútmagana, þeir fylltir tæplega að hálfu.
Lokað vel fyrir opið og þeir soðnir á sama máta í saltvatni, nema mun lengur eða ca 1 ½ - 2 klst.

 

Bornir fram heitir með soðnum kartöflum, rúgbrauði og smjöri.

 

Ath. Kútmaga má sjóða án fyllinga og borða soðna eða súrsaða.