Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Ódýrir réttir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Kjúklingabaunaréttur


Lýsing

Í þennan rétt má nota niðursoðnar kjúklingabaunir.

Hráefni

í stuttu máli
Grænmetisréttir
Ódýrir réttir
Skammtar
4

2 dl kjúklingabaunir eða
1 dós niðursoðnar kjúklingabaunir
1 laukur
2 hvítlauksrif
matarolía

1 dl þurrkuð trönuber
1 dl sveskjur
1 dl döðlur
1 dós niðursoðnir hakkaðir tómatar
1 1/2 - 2 dl eplasafi
1 tsk Garam masala
1/2 salt
1/4 tsk svartur pipar

1 dl furuhnetur

Leiðbeiningar

Ef notaðar eru ósoðnar baunir þarf að leggja þær í bleyti í 8-10 klst.
Vatninu hellt af þeim og þær soðnar í ca 1 klst.
(Dósabaunum er hellt í sigti og skolaðar úr köldu vatni).
Laukur og hvítlaukur saxaður og mýktur í heitri olí á pönnu.
Sveskjur og döðlur skornar fremur smátt og þeim ásamt trönuberjum, tómötum, Garam masala og eplasafa bætt á pönnuna.
Látið sjóða í 20 mínútur við vægan hita.
Kjúklingabaununum bætt saman við, saltað og piprað og hitað í gegn.

Furuhneturnar léttristaðar á heitri pönnur og dreift yfir réttinn þegar hann er borinn fram ásamt góðu brauði og grænu salati.