


Góður á nöpru haustkvöldi.
800 g kjúklingabitar
3 msk olía
1 msk kjúklingakrydd
2 sætar kartöflur, fremur litlar eða ein stór
250 g gulrætur
1 hnúðkál
1 rauðlaukur
4 -5 tómatar
1 dós niðursoðnar kjúklingabaunir
smávegis salt
Olíu og kryddi blandað saman og kjúklingabitunum velt upp úr blöndunni og raðað í eldfast mót.
Grænmetið hreinsað og skorið í fremur smá bita og sett inn á milli kjúklingabitanna. Afganginum af kryddolíunni dreift yfir.
Steikt í forhituðum ofni við 200° í ca 30 mínútur. Hrært í 2-3svar á meðan á steikingu stendur.
Þá eru niðurskornum tómötum og baunum, sem vökvinn hefur verið sigtaður frá. Blandað saman við.
Saltað aðeins ef vill, og steikt í 10-15 mínútur til viðbótar.
Borið fram með salati, fetaosti í kryddolíu og góðu brauði.