Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Aðalréttir kjúklingur
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Kjúklingapottréttur


Lýsing

Þennan rétt má gera deginum áður en á að bera hann fram. Þá er eldunartími hafður 10 mínútum styttri og rétturinn kældur fljótt og geymdur í kæliskáp í lokuðu íláti.
Síðan hitaður vel í gegn og látin malla í 10 mínútur.

Hráefni

í stuttu máli
Aðalréttir
Skammtar
6

1 kjúklingur hlutaður í bita
eða 1200 g kjúklingabitar
1 msk olía
2 laukar
2 hvítlauksrif, ef vill
2 stilkar sllerí
börkur af 1 sítrónu
150 g ljósar rúsínur
200 g (1 krukka) olívur
1/2 l vatn
1 teningur kjúklingakraftur
ögn af salti og pipar

Leiðbeiningar

Kjúklingabitarnir eru brúnaðir í potti þangað til þeir hafa tekið góðan lit.
Þá er brytjuðum lauk, sellerí og mörðum hvítlauk, ef hann er notaður bætt úti, ásamt soði, sítrónuberki, rúsínum og olífum.
Látin malla undir loki í ca 45 mínútur.
Smakkaður til með salti og pipar.

Borin fram með grænu salati og góðu brauði.