


Einkar fljótlegur og góður.
2 sætar kartöflur (fremur stórar)
1 krukka fetaostur (ekki öll olían)
1 poki ferskt spínat
4 kjúklingabringur
2-3 msk mango chutney
Ritskex
1-2 msk smjör
matarolía
Kartöflurnar eru afhýddar og skornar í og raðað í botn á eldföstu, móti smurðu olíu.
Spínatið lagt yfir og þar næst fetaosti ásamt hluta af olíu í krukkunni.
Kjúklingabringurnar skorna í þrennt og smurðar með mango chutney og steiktar í heitri olíu á pönnu.
Raðað yfir það sem komið er í eldfasta mótið og Ritskex mulið yfir þannig að það loki vel yfir réttinn.
Smá smjörklípum dreift yfir.
Bakað í 200° heitum ofni í ca 30 mínútur.
Borið fram með fersku alati, t.d. úr Rucola salati og sérrýtómötum sem kreist er yfir smávegis að lime-safa.