Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Aðalréttir kjúklingur
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Kjúklingasalat


Lýsing

Kjúkling er auðvelt að matreiða á fjölbreyttan hátt. Um að gera að nota sér tilboð á ferskum bringum og heilum kjúklingum og setja í frysti.

Hráefni

í stuttu máli
Aðalréttir
Skammtar
6

700 g kjúklingabringur eða lundir

Lögur
3 stk sítrónugras
ca msk fersk engiferrót
4 msk soyasósa
½ msk hunang
4 msk sesamolía

Sett í matvinnsluvél og maukað vel.

Salat
Spínatsalat, 1 poki
3-4 sherrytómatar
1/2 stk vel þroskað mango
2 límónur, safi og sneiðar
2 msk ristaðar furuhnetur

Leiðbeiningar

Kjötið er smurt með maukinu og látið bíða í ísskáp í ca 4 klst.
Þá er það steikt á pönnu þar til það er soðið í gegn.
Kælt og skorið í strimla og blandað saman við salatið.

Salat
Skornum tómötum og mangói bætt út í spínatið og límónusafi  kreistur yfir. Límóna skorin í litlar sneiðar og sett í.
Ferskt kóríander klippt að lokum yfir ásamt furuhnetunum.  
Með þessu er borið gott brauð og grænt pestó.