Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Sultugerð Saft
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Krækiberjasaft I


Lýsing

Þetta er ein aðferð við að gera krækiberjasaft.

Hráefni

í stuttu máli
3 kg krækiber
2 lítrar vatn
40 gr vínsýra
250-­500 gr sykur í hvern lítra af safa

Leiðbeiningar

Hreinsið og skolið berin ef þess gerist þörf. Hakkið þau eða merjið í berjapressu.
Leysið vínsýruna upp í vatninu og blandið upplausninni í berjamaukið. Látið standa í 24 tíma. Hellið á síu og látið saftina síga vel frá hratinu. Mælið saftina og blandið sykrinum saman við hana. Hrærið í þar til sykurinn er runninn. Hellið saftinni á hreinar og soðnar flöskur og lokið þeim strax. Geymið saftina á köldum og helst dimmum stað.