Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Forréttir fiskur
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Kryddlegnir sjávarréttir


Lýsing

Mjög ferskur og góður forréttur.

Hráefni

í stuttu máli
Forréttir
Skammtar
4

100 g rækjur
100 g hörpufiskur
nokkrar sneiðar niðursoðnar asíur + smá safi má fara með
2 súraldin, (lime)
1/2 rauðlaukur
ca 10 svartar olífur
ögn af pipar og salti
1 msk söxuð fersk basilika

nokkur salatblöð

Leiðbeiningar

Rækjur og hörpufiskur sett í skál, má vera aðeins frosið. Út á hann fara smátt saxaðar asíur, safi, laukur og basilika. Olífurnar skornar í sneiðar og bætt við. Safinn úr öðru súraldinu kreistur yfir og hitt skorið í þunna báta og sett út í. Kryddað aðeins með salti og pipar.
Látið bíða í kæliskáp í 2-3 klst.
Salatblöðum raðað fallega á disk og sjávarréttum þar yfir. Og skeytt með heilum basilikublöðum.