


Góð aðferð er að ofnsteikja kjöt og grænmeti saman, allt í einum potti.
lambalæri ca. 2,5 kg
1 msk Maldon salt
nýmalaður svartur pipar eftir smekk
1-2 msk sítrónusafi
Grænmeti
700 g kartöflur
300 g sætar kartöflur
250 g gulrætur
2 laukar
4 stilkar sellerí
2-3 hvítlauksgeirar ef vill
1 msk þurrkað rósmarín
salt
olía
2 1/2 dl kjötsoð
Kjötið er saltað og piprað eftir smekk.
Grænmetið er skorið frekar gróft og allt í lagi að hýðið af lauknum fylgi með. Ef hvítlaukur er notaður er hann hann skorin í flísar og settar með grænmetinu eða stungið í kjötið.
Sett í steikingarpott eða djúpa ofnskúffu ásamt olíunni og velt upp úr henni.
Kryddað með salti og rósmarín.
Lærið lagt ofan á.
Steikt við 180° hita í 1 !/2 - 2 klst. fer eftir þykkt lærisins.
Þegar steikingartíminn er hálfnaður eða svo, er kjötsoðinu hellt í pottinn.
Hitinn hækkaður í 200° síðustu 10 mínúturnar eða svo.