


Ekkert mælir á móti að nota annan feitan fisk í staðinn fyrir lax t.d. lúðu eða blanda saman tegundum...
500 g nýr lax, beinhreinsaður
250 g rækjur
175 g majones
175 g sýrður rjómi 10%
350 g þeyttur rjómi (3 ½ dl)
12 blöð matarlímsblöð
hvítvín til að leysa matarlímið upp í
Sósa
150 g majones
150 g sýrður rjómi
ca 2 msk þeyttur rjómi
sítrónusafi eftir smekk
örlítill sykur
hvítvín eftir smekk
Ferski laxinn er soðinn, kældur og beinhreinsaður. Tættur niður smátt með gaffli eða hakkaður, ásamt rækjunum, eftir hvað patéið á að vera gróft. Líka má skera fiskinn í litla bita.
Hrærið saman majonesi og sýrðum rjóma og blandið saman við fiskinn.
Þá er matarlímið lagt í bleyti og síðan leyst upp í hvítvíninu og því blandað saman við. Að lokum er þeytta rjómanum blandað varlega saman við. Patéið kælt og skorið í sneiðar.
Sósa
Öllu hrært vel saman og borið fram með „patéinu“ ásamt ristuðu brauði.
Fallegt að skreyta með harðsoðnum eggjum í sneiðum, ferskri steinselju og tómatsneiðum. Eða bara því sem manni dettur í hug.