Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Sláturgerð Lifrarpylsa
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Lifrarpylsa I


Lýsing

Mörgum finnst lifrarpylsa betri en blóðmör, sem er auðvitað smekksatriði eins og svo margt annað.

Hráefni

í stuttu máli
Sláturgerð

1 lifur
2 nýru
1 hjarta
2 ½ dl. nýmjólk
1 dl kjötsoð
100 g haframjöl
100 g hveiti eða heilhveiti
300-350 g rúgmjöl eða sem þarf til að blandan verði mátulega stíf
400 g mör
½ - 1 msk gróft salt

Leiðbeiningar

Aðferð:
Innmaturinn er þvegin og allar himnur og slím fjarlægt. Hakkað einu sinni eða tvisvar, eftir smekk.
Þá er mjólk og soði bætt út í og hrært saman, mjöli og mör bætt út í. Hrært þangað til allt verður jafnt.
Hæfilegt magn sett í hvern kepp og soðið í saltvatni í 2- 2 ½ klst.

Má frysta bæði soðna og ósoðna.