Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Sláturgerð Lifrarpylsa
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Lifrarpylsa II


Lýsing

Þessi uppskrift er úr bók Sólveigar Benediktsdóttur og Halldóru Eggertsdóttur. (1961).

Hráefni

í stuttu máli
Sláturgerð

1 kg lambalifur
250 g lambanýru
450 g rúgmjöl
150 g haframjöl
50-100 g hveiti
30 g salt
3/4 - 1 l mjólk
1 kg mör

Leiðbeiningar

Lifur og nýru þvegin og allar himnur og æðar teknar burt. Hakkað 2svar til 3svar í hakkavél.
Sett í fat eða skál og mjólk og salt hrært út í.
Þá er mjölinu hrært saman við og að síðustu er brytjuðum mörnum bætt í. Hræran er nokkuð þykk.
Sett í keppi og saumað fyrir.
Soðin í 2 - 21/2 klst. Muna að stinga í keppina á meðan á suðu stendur.