Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Súpur
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Linsubaunasúpa


Lýsing

Holl bauna- og grænmetissúpa, sem er heil máltíð með góðu brauði.

Hráefni

í stuttu máli
Súpur
Skammtar
6
1 laukur (frekar stór)
1 hvítlauksrif
3-4 sellerístönglar
2 gulrætur (stórar)
1 hnúðkálshaus (lítill)
1 1/2 l vatn
2 kjúklinga- eða grænmetisteningar
400 gr grænar linsubaunir
pipar
salt
ferskt krydd til að strá yfir súpuna áður en hún er borin fram t.d. kóriander, steinselja eða timjan
2-3 msk olía

Leiðbeiningar

Grænmetið er er hreinsað, þvegið og skrælt eftir sem við á. Skorið í bita og mýkt í heitri oliu í pottinum sem súpan á að sjóða í.
Linsurnar skolaðar. Vatni hellt út á grænmetið ásamt teningunum. Suðan látin koma upp og þá er linsunum bætt út í. Soðið í ca. 20 mínútur eða þangað til linsurnar eru orðnar mjúkar.
Kryddað með salti og pipar eftir smekk.
Borin fram rjúkandi heit og fersku kryddi stráð yfir.

Gott brauð með smjöri og osti ef vill borið með.