Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Grænmetisréttir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Linsubuff


Lýsing

Mjög fljótleg baunabuff.

Hráefni

í stuttu máli
Grænmetisréttir
Fjldi
2

2 dl grænar linsubaunir
4 dl vatn
2 egg
2 msk bókhveiti eða ísl. byggmjöl
1 tsk tímjan
½ tsk paprikuduft
salt eða hvítlaukssalt að smekk
pipar

Leiðbeiningar

Linsurnar eru soðnar í 15-20 mínútur, hellt í sigti og allt vatn látið renna af þeim.
Eggjum og bókhveiti hrært saman við baunirnar ásamt kryddi. Ath. deigið er frekar lint.
Úr því eru svo mótuð buff og steikt á báðum hliðum á vel heitri olíu á pönnu, þangað til þau eru gegnsteikt.
Gott að strá rifnum osti yfir undir lok steikiingartímans.
Borin fram með steiktu grænmeti t.d. sætum kartöflum, púrrulauk og papriku.
Góð olífuolía og brauð borið með.