Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Grautar
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Morgungrautur Gabríels


Lýsing

Er hollur og góður.

Hráefni

í stuttu máli
Grautar
Skammtar
2

3 dl bankabygg
9 dl vatn
2 epli skorin í litla teninga
1-2 dl rúsínur
1 msk kanill
2 tsk salt
1-2 dl fræ eftir smekk, t.d. sólblómafræ og/eða graskersfræ.
(+ 2 tsk hunang og 1 dl döðlur fyrir sælkerana)

Leiðbeiningar

Hráefnið er allt sett í pott t.d. að kvöldi og suðan látin koma vel upp, síðan er slökkt undir, lokið sett á pottinn og farið að sofa. Að morgni þarf bara að hita grautinn upp og borða t.d. með mjólk (en það er ekki síðra að borða hann kaldan) eða nota sem múslí á súrmjólkina. Grauturinn þolir vel geymslu í kæli svo tilvalið er að sjóða hann til nokkurra daga í einu. (www.blomaval.is).