


Eða svo kallaðar Cup Cakes eru alltaf vinsælar og fallegar á borði.
160 g hveiti
130 g sykur
1 1/2 tsk lyftiduft
2 dl mjólk
1/2 dl smjör
1-2 tsk vanilludropar
Bræðið smjörlíkið og blandið síðan öllu saman og hrærið eins lítið og hægt er.
Látið deigið í vel smurð smámót og bakið kökurnar við 250° hita í 10-15 mín.
Það getur verið gott til tilbreytingar að blanda kakó í deigið. Það má skreyta muffinskökurnar með flórsykurbráð eða skrautsykri.