


Þessar eru ekta sparimúffur. Má skreyta t.d. með sykurbráð (glassúr), marsipanblómum og/eða súkkulaðihnöppum.
125 g smjör
50 g kakó
200 g núggat
4 egg
300 g strásykur
2 dl mjólk
200 g hveiti
2 tsk kanilduft
1 msk lyftiduft
200 g dökkt súkklaði (t.d. 56%)
Smjörið er brætt í potti við vægan hita, kakói og núggatinu hrært út í.
Kælt.
Á meðan er egg og sykur þeytt þangað til það er ljóst og létt. Því næst er mjólkinni bætt í og þá þurrefnum. Hrært létt saman.
Þá er smjör-núggahrærunni blandað saman við og að síðustu brytjuðu súkkulaðinu.
Sett í múffuform og bakað við 200° í 15-20 mínútur.
Skreytt að vild og smekk.