Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Meðlæti soðið/steikt
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Ofnsteiktar sætar kartöflur


Lýsing

Góðar með svínakjöti og kjúklingum.

Hráefni

í stuttu máli
Meðlæti
Skammtar
4
600 gr sætar kartöflur
2 hvítlauksgeirar (ef vill)
4 greinar ferskt timjan
eða 1 tsk þurrkað timjan
2-3 msk matarolía
salt
smjör

 

Leiðbeiningar

Kartöflurnar eru afhýddar og skornar í sneiðar eða teninga. Hvítlauksgeirarnir sneiddir í þunnar sneiðar. Sett í eldfast fat og olíu hellt yfir. Hrært vel í þannig að olían dreifist vel. Kryddið saxað og dreift yfir eða stráð yfir ef notað er þurrkað.
Nokkrum smjörklípum er dreift ofan á og síðast grófu salti.

Bakað í 200° heitum ofni í ca 40 mínútur eða þangað til kartöflurnar eru meyrar.