Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Sósur kaldar
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Olíusósa / majónes


Lýsing

Heimalöguð olíusósa (majónes) er góð í salöt og kaldar sósur eða bara ein sér með t.d. rækjum og brauði.

Hráefni

í stuttu máli
Sósur

2 eggjarauður
1 tsk borðsalt
1 msk sjóðandi vatn
matarolía (ekki olífuolía)
1 stk sítróna

Leiðbeiningar

Eggjarauðurnar þeyttar með saltinu, þar til þær verða léttar og ljósar. Þá er sjóðandi vatninu bætt saman við og hrært vel í á meðan.
Matarolíunni hellt í í mjórri bunu, fyrst litlu í einu og þeytt vel þar til hræran fer að þykkna og þá er safanum úr 1/2 sítrónunni bætt í.
Þá er haldið áfram með að hella matarolíunni út í, þar til sósan þykir mátulega þykk. Undir lokin er afganginum af sítrónusafanum settur saman við.
Verði hræran of þunn má bæta meiri olíu út í.

Uppskrift frá Ingibjörgu Tönsberg.