Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Páskauppskriftir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Pavlova-rúlla


Lýsing

Uppskriftin kemur frá Ástralíu og er einstaklega ljúffeng sem eftirréttur eða á kaffiborðið.

Hráefni

í stuttu máli
Bakstur
Páskauppskriftir

4 eggjahvítur
125 g strásykur
1 tsk vanillusykur
50 g möndluflögur
eða 2-3 msk kókosmjöl
1/2 dós ananaskurl (ca 340 gr)
2 1/2 dl rjómi

Leiðbeiningar

Bökunarpappír er settur á bökunarplötu og búið til form með því að bretta upp á kantana: stærð ca 25x30 cm.
Eggjahvíturnar eru stífþeyttar og þessu næst er sykur og vanillusykur settur út í og allt stífþeytt upp á nýtt.
Deigið breitt út á pappírinn og möndluflögum eða kókosmjöli stráð yfir.
Bakað í 125° heitum ofni í ca 30 mínútur.

Kökunni er síðan hvolft varlega á sykurstráðan bökunarpappír og pappírinn sem kakan var bökuð á er tekin mjúklega ofan af.
Ananaskurlinu hellt í sigti og safinn látinn síga vel af.
Rjóminn þeyttur.
Ananaskurlinu dreift yfir botninn og því næst rjómanum.

Þá er að rúlla kökunni upp eftir endilöngu með því að nota pappírinn. Kostar kannski smáæfingu en er í raun ekki flókið. Sett á disk og samskeytin látin snúa niður.
Má bera fram strax eða geyma í kæliskáp í 1-2 klst.