Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Páskauppskriftir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Páskakaka


Lýsing

Fljótleg og góð með kaffinu.

Hráefni

í stuttu máli
Bakstur
Páskauppskriftir


175 g strásykur
2 egg, frekar stór
1 dl matarolía
200 g hveiti
50 g kókosmjöl
2 tsk lyftiduft
30 g hakkaðar möndlur
safi og börkur af einni appelsínu

Leiðbeiningar


Egg og sykur þeytt þangað til blandan verður ljós og létt. Olíunni hellt rólega út í og þeytt á meðan. Þurrefnunum blandað saman og hrært saman við eggjahræruna.
Að síðustu er appelsínusafa og rifnum berkinum bætt í. Ekki má hræra þetta hratt né lengi.
Deigið er sett í smelluform sem er vel smurt og stráð kókosmjöli.
Möndlunum stráð yfir deigið og kakan bökuð við 180° hita í ca 40 mínútur.
Sleppa má möndlunum og búa til sykurbráð.

Sykurbráð (glassúr)

225 gr flórsykur
nokkrir dropar matarolía
1 msk sjóðheitt vatn
appelsínusafi þangað til bráðin er hæfilega þykk 
Kökuna er fallegt að skreyta með litlum súkkulaðipáskaeggjum