Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Páskauppskriftir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Páskaterta


Lýsing

Má nota sem eftirrétt eða á kaffiborð. Falleg og páskaleg.

Hráefni

í stuttu máli
Bakstur
Páskauppskriftir

Botn
150 g gott hafrakex
50 g smjör

Fylling
2 eggjarauður
3 msk strásykur
1 tsk vanillusykur
200 g kotasæla
1 ¾ dl sýrður rjómi (18%)
½ súraldin (lime), safi og rifinn börkur
5 blöð matarlím
2 ½ dl rjómi

Ofan á tertuna
1 stór dós niðursoðnar apríkósur eða 2 hálfdósir
4 matarlímsblöð



 

 


 



 

Leiðbeiningar


Smjörið brætt við vægan hita á pönnu og kexið mulið frekar fínt, best að gera það með því að setja kökurnar í plastpoka og rúlla yfir með kökukefli. Sett út í smjörið og blandað vel saman.
Kexblöndunni þrýst vel á botninn á smurðu smelluformi.

Eggjarauður, sykur, vanillusykur og kotasæla þeytt vel saman í hrærivél. Sýrða rjómanum og súraldinsafa og berki hrært saman við.
Matarlímið lagt í bleyti í kalt vatn.
Tekið úr vatninu og leyst upp í skál í vatnsbaði með bleytunni sem loðir við það. Þegar það er uppleyst er því hellt í einni bunu út í kotasælublönduna og hrært vel saman.
Sett í skál og kælt þangað til það byrjar að stífna.
Rjóminn þeyttur og blandað saman við blönduna.
Blöndunni hellt yfir kexbotninn í forminu og filma breidd yfir og geymt í kæliskáp í nokkra klst.

Safinn sigtaður vel frá apríkósunum og settur í skál.
Matarlímið lagt í bleyti, vatnið kreist úr því og það leyst upp í 3 dl af safanum í vatnsbaði.
Kælt.
Aprikósunum (þerra vel safann af þeim áður) er síðan raðað ofan á kökuna þannig að kúpta hliðin snúi upp.
Safanum dreypt yfir apríkósurnar.
Þarf að bíða a.m.k. eina klst í kæliskáp áður er hún er borin fram.
Best er að renna spaða undir kökuna og flytja varlega yfir á kökufat.