


Góð með ýmsum forréttum.
2 msk rifinn fersk piparrót
2 dl sýrður rjómi
1 tsk rifinn sítrónubörkur (má sleppa)
1 tsk hrásykur
nokkrir dropar soyasósa
salt og pipar e. smekk
Blandið saman piparrót (og sítrónuberki ef hann er notaður) og sýrðum rjóma. Bragðbætið með soyasósu, sykri, salti og pipar. Kælt áður en borið er fram og geymt síðan í kæliskáp.