Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Jólauppskriftir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Pizzumúffur


Lýsing

Tilvaldar á hvers konar hlaðborð. Frekar stór uppskirft.

Hráefni

í stuttu máli
Smáréttir
Jólauppskriftir
Deig
800 gr smjördeig (2 pk frosið)

Fylling
2 bréf beikon ca 3-400 gr
300 gr sveppir
2-3 egg
3 laukar
400 gr rifinn ostur
1-2 msk Italian seasoning

Múffuform úr pappír

Leiðbeiningar

Smjördeigið er flatt fremur þunnt út og stungnar út kökur. Þær látnar í múffuformin.
Beikonið steikt og brytjað smátt, sama er gert við sveppina. Laukurinn saxaður smátt.

Sett í skál og eggjunum hrært saman við ásamt kryddi. Að síðustu er rifnum ostinum blandað saman við.

Fyllinguni dreift í formin og bakað við 200° C í 10-15 mínútur.
Má frysta.