Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Ódýrir réttir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Pottréttur


Lýsing

Matarmikill grænmetisréttur.

Hráefni

í stuttu máli
Grænmetisréttir
Pottréttir
Ódýrir réttir
Fjldi
4

6 vænar gulrætur
1 blaðlaukur, bæði ljósi og græni hlutinn
1 laukur
1 box sveppir
1 græn paprika
¼ af hvítkálshaus
1 dós niðursoðnir tómatar
½ agúrka
½ tsk karrý
½ tsk paprika
1 msk basilika
2 ½ dl soð af grænmetisteningi
salt og pipar ef þarf
4 tómatar ferskir

Leiðbeiningar

Grænmetið (allt nema fersku tómatarnir) er skorið í bita og mýkt í í góðri olíu í potti. Á ekki að brúnast.
Niðursoðnu tómötunum hellt út í og kryddi, (nema salti og pipar) vatni og soði  bætt út í.
Látið sjóða við vægan hita í ca 15 mín.
Saltað og piprað ef þarf.
Fersku tómatarnir skornir í báta og settir út í um leið og rétturinn er borin fram.
Borið fram með soðnum pastaskrúfum eða hrísgrjónum og jafnvel brauði.
Einnig upplagt sem meðlæti með kjöt- eða fiskréttum.