Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Sultugerð Sultur
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Rabarbara- og bláberjasulta


Lýsing

Tilbrigði við venjulega rabarbarasultu.

Hráefni

í stuttu máli

1 kg rabarbari
3 msk vatn
1 kg bláber
1 kg strásykur
500 g dökkur púðursykur

Leiðbeiningar

Rabarbarinn hreinsaður og þveginn og skorinn í smá bita. Settur í pott ásamt vatni og soðinn við vægan htia í ca 15 mín. eða þangað til hann fer að mýkjast.
Bláberin hreinsuð og sett saman við og allt soðið við vægan hita þangað til blandan er mjúk. Látið rjúka.
Sett i matvinnsluvél og maukað. Sett aftur í pott og sykrinum bætt út í.
Hitað hægt að suðu í 15-20 mín.
Sett í hreinar krukkur og látið kólna áður en þeim er lokað.

Uppskrift: Ólafía Kristín Sigurbergsdóttir, Keflavík.