Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Súpur
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Rauðrófu- fiskisúpa


Lýsing

Matarmikil súpa.

Hráefni

í stuttu máli
Súpur
Skammtar
4
250 gr rifin rauðrófa
1 gulrót, stór
1 laukur, smátt saxaður
15 gr smjör
8 dl soð af grænmetistening eða annað grænmetissoð

300 gr rauðsprettu- eða smálúðuflök í litlum strimlum/bitum
2 msk sítrónusafi
1 dl smátt söxuð steinselja
1 tsk hrásykur
pipar
salt
1 dl sýrður rjómi (18%)

Leiðbeiningar

Smjörið hitað í potti og grænmetið mýkt í því. Hrært vel í því á meðan.
Soðinu hellt út í og hitað að suðu. Soðið í 20 mín.
Maukað með töfrasprota. Súpan smökkuð til með hrásykri, pipar, sítrónusafa og smávegis af salti. Og suðan látin koma upp aftur.
Diskarnir sem bera á súpuna fram í, eru hitaðir. Fiskurinn látin á þá og snarpheitri súpunni hellt yfir.
Matskeið af sýrðum rjóma sett ofan á, ásamt saxaðri steinselju.

Meðlæti
Gott brauð, smjör og pestó.