


Stendur alltaf fyrir sínu.
nokkur fersk salatblöð t.d. jökla- eða jólasalat
1 stk mangó, vel þroskað
300 g rækjur
Sósa
2 dl sýrður rjómi
1 dl rjómi þeyttur
1-2 tsk sítrónusafi
2 msk tómatsósa
1 msk vorlaukur smátt saxaður
1 msk þurrkað dill
smávegis af hvítvíni ef vill
salt og fpipar eftir smekk
dillgreinar ef vill
Salatblöðin eru rifin niður og skálar klæddar að innan með þeim. Mangóið skorið í fremur litla bita og þeim og rækjum blandað saman og sett í skálarnar.
Sósan löguð þannig að sýrðum rjóma og rjóma blandað vel saman , hrært vel og öðru hráefni bætt út í. Smakkað til með salti og pipar.
Sósunni er síðan dreift yfir rækju- og mangókokteilinn og skreytt með sítrónu sneiðum og ferskum dill greinum ef vill.
Borið fram vel kælt með ristuðu brauði.