


1 box beikonsmurostur, stórt
100 gr sveppir
½ blaðlaukur
150 gr skinka
4 msk majónes
1 lítil dós ananskurl + safi
1/2 tsk Aromat krydd
ostur, rifinn ofan á
paprikuduft
Sveppirnir skornir smátt og léttsteiktir í smjöri á pönnu, Skinka og blaðlaukur (vel hreinsaður) saxað smátt.
Öllu hrært vel saman smurt á rúllutertubrauð. Brauðið rúllað upp og samskeytin látin snúa niður
Rifnum osti stráð yfir ásamt paprikudufti.
Hitað í ofni við 180° í 20-30 mín. eða þangað til osturinn fer að taka lit.