


100 gr suðusúkkulaði, venjulegt
100 gr suðusúkklaði, 70%
2 msk flórsykur
4 egg
2 ½ dl rjómi
nokkur saltkorn
örl. af góðri vanillu
önnur bragðefni sem á nota:
rifinn appelsínubörkur, 1-2 tsk
ögn af kanil
eða einhver góður líkjör, 1-2 msk
Súkkulaðið er brætt við vægan hita í vatnsbaði og sett strax í aðra skál. Eggjarauðunum bætt út í, einni í einu og því næst sykri, salti og vanillu og hrært vandlega saman.
Eggjahvíturnar stífþeyttar og þeim blandað varlega út í súkkulaðibráðina í tvennu lagi. Best að nota pískara.
Látið kólna.
Rjóminn þeyttur og blandað varlega saman við.
Sett í eina stóra skál eða nokkrar litlar.
Látið standa í kæliskáp í 2-3 klst. áður en hann er borin er fram.
Gott að bera fram þeyttan rjóma með og jafnvel ferska ávexti s.s. bláber eða jarðarber.