


Mjög góður og sparilegur eftirréttur, einskonar léttari útgáfa af „triffli“.
4 egg
5 msk flórsykur
3 msk sherrý
7 blöð matarlím
1/2 líter rjómi
100-200 g makkarónukökur eftir stærð og lagi skálar + 1/2 - 1 dl sherrý
100 g suðusúkkulaði með appselsínubragði
Ofan á frómasið
1 1/2 dl rjómi, þeyttur
nokkur fersk ber eða þurrkuð t.d.Gojiber og ristaðar möndlur og
hvítt súkkulaði, gróft rifið.
Kökurnar muldar eða brotnar og lagðar á botninn í eina stóra skál eða 6 litlar.
Bleytt í kökunum með sherrýinu. Magnið fer eftir hvað mikið er notað af kökum.
Súkkulaðið saxað fremur smátt.
Rjóminn þeyttur og settur í kæli.
Matarlímið lagt í bleyti í smávegis af köldu vatni í ca 10 mín.
Egg og sykur þeytt saman þangað til blandan verður ljós og létt.
Vatnið kreist úr matarlíminu og það brætt í sherrýi í vatnsbaði við vægan hita. Hrært alveg kekkjalaust. Kælt aðeins og hellt í mjórri bunu út í eggjahræruna og hrært í á meðan.
Súkkulaðinu bætt út í og hrært.
Rjómanum blandað varlega saman við eggjahræruna.
Rjómabúðingnum hellt yfir kökurnar, sléttað yfir og lokað með filmu og geymt í kæli.
Gott að vita:
Það má líka setja bleyttar muldar makkarónukökur út í hræruna ef vill. Þá er súkkulaðinu sleppt.
Skreytt eftir smekk með þeyttum rjóma, rifnu hvítu súkkulaði, heilum berjum eða þurrkuðum Gojiberjum og ristuðum möndluflögum áður en borið er fram.
Í staðinn fyrir sherrý má nota góðan ávaxtasafa eða sterkt og gott kaffi.