


Ljúffengur forréttur sem á vel við hvort heldur er á undan kjöti eða fiski.
1 pk parmaskinka
100 g blaðsalat
2 tómatar, stórir og vel þroskaðir
1 búnt fersk basilika
2 mozarellakúlur
Ristað brauð.
Olíunni er hrært saman við sinnepið þangað til blandan þykknar.
Parmaskinkunni raðað eða rúllað upp á forréttadiska.
Tómatar og ostur skorin í sneiðar og raðað með. Salatinu komið smekklega fyrir ásamt smáttsaxaðri basilikunni.
Sinnepsleginum dreift yfir að lokum. Borið fram kælt með ristuðu brauði skornu í horn.