Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Bakstur brauð
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Skinkuhorn


Lýsing

Eru frábær á kaffihlaðborð.

Hráefni

í stuttu máli
Smáréttir
Bakstur
Fjldi
48
25 gr ger (eða ½ pk þurrger)
2 ½ dl nýmjólk
25 gr sykur
1-2 tsk salt
25 gr smjör eða smjörlíki (brætt)
ca 400 gr hveiti 

Skinkumyrja

1 egg + smávegis af köldu vatni

Leiðbeiningar

Gerið er leyst upp í volgri mjólk ásamt sykrinum í stórri skál, þangað til það byrjar að freyða.
Þá er salti og bræddu smjöri bætt út í.
Mjölinu bætt út í smátt og smátt þangað til deigið verður meðfærilegt. Þá er því skipt í 3 hluta, hver hluti flattur út í kringlótta köku sem skorin er í 16 geira.
Hverjum geira rúllað upp í horn, byrjað á breiðasta endanum. Sett á plötu með mjóa endan niður. Penslað með eggi sem hefur verið hrært út með smá af köldu vatni.
Bakað í forhituðum ofni á 260° í ca 12 mínútur. 

Má frysta.