


Án eggja. Í stað mjólkur má nota sojamjólk og í staðinn fyrir þeyttan rjóma má nota jurtaís og/eða jurtaþeytikrem. Sama er með smjör nota þá jurtaolíu eða jurtasmjörlíki þar.
450 g hveiti
300 g sykur
2 msk vanillusykur
1 1/2 msk lyftiduft
180 g bráðið smjör
2 dl vatn
1 1/2 dl mjólk
Blandið þurrefnunum í skál. Bræðið smjörið í mjólk og vatni og vætið í þurrefnunum með þessu.
Hellið deiginu í smurt mót.
Bakið hana við ca. 180 C í ca. 30 mín.
Svampbotnana má svo leggja saman með ávöxtum eða kremi og skreyta eins og venjulegar rjómatertur.