Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Pastaréttir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Sveppapastaréttur


Lýsing

Fljótlegur og góður.

Hráefni

í stuttu máli
Pastaréttir
Skammtar
2

250 gr pasta að eigin vali
400 gr sveppir, gjarnan 2 tegundir
smjör
olía
1 dl rjómi
salt
pipar
60 pístasíukjarnar
100 gr rucolasalat
sítrónusafi
ólífuolía

Leiðbeiningar

Pastað er soðið í léttsöltuðu vatni þangað til að er mjúkt (al dente).
Sveppir hreinsaðir og skornir í sneiðar. Steiktir á pönnu í blöndu af olíu og smjöri.
Safanum af þeim hellt frá þegar þeir eru byrjaðir að taka lit. Rjómanum hellt út á og hitað í gegn.
Saltað aðeins og piprað.
Pastað sett á disk og ofan á það fara sveppir og þar næst salatið. Að síðustu er ristuðum pistasíukjörnum dreift yfir ásamt ögn af olífuolíu.

Brauð borið með.