Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Grautar
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Sveskjugrautur


Lýsing

Hægt er að gera grauta úr margskonar þurrkuðum ávöxtum s.s. apríkósum, eplum, perum eða blöndu af nokkrum tegundum.

Hráefni

í stuttu máli
Grautar
Skammtar
4-5
200 gr þurrkaðar sveskjur
100 gr sykur
9 dl vatn
30 gr kartöflumjöl + 1 dl vatn

Leiðbeiningar

Sveskjurnar soðnar í vatninu þangað til þær eru meyrar. Sykrinum bætt út í og suðan látin koma upp. Porrutinn rekin af hellunni og jafnað með kartöflumjölinu hrærðu út í köldu vatni. Hitað aftur að suðu.
Borin fram heitur eða kaldur með t.d. rjóma eða AB mjólk út á.