Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Sósur kaldar
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Tómatsósa


Lýsing

Það er mjög auðvelt að búa til sína eigin tómatsósu. Þessi bragðast einkar vel t.d. með grilluðum hamborgurum og ýmsum fiskréttum.

Hráefni

í stuttu máli
Sósur
½ kg tómatar, vel þroskaðir
1 epli, stórt (ca 250 gr)
1 laukur, meðalstór
1 msk olía

¼ tsk kanilduft eða
1 kanilstöng
¼ tsk negulduft
1 tsk sinnepsduft
½ dl eplaedik
¼ dl púðursykur eða
1 msk hunang eða sýróp
½ -1 tsk gott salt
örl. pipar (hvítur)

Leiðbeiningar

Eplið er skrælt, kjarnhreinsað og skorið í fremur litla bita. Sömuleiðis er laukurinn skorin fremur smátt og þetta er sett á pönnu sem hituð hefur verið með olíunni. Gæta þarf að brúnist ekki, einungis látið mýkjast. Sett í pott ásamt kryddi, eplaediki og tómötunum sem hafa verið þvegnir og skornir í báta. Látið sjóða við vægan hita í ca 30 mínútur, hræra þarf af og til í á meðan og smakkað til. Ef notuð er kanilstöng er hún veidd úr í lokin.
Allt maukað með töfrasprota eða sett í blandara.
Sett á flösku eða krukku. Kælt strax.
Geymist í rúma viku í kæliskáp.
Hægt að auka geymsluþol með því að setja eins og teskeið af betamoni í blönduna að suðu tíma loknum.

Í stað neguldufts má setja ½ msk af rifinni ferskri engiferrót.