Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Páskauppskriftir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Trufflur I


Lýsing

Einfaldar að allri gerð og einkar ljúffengar með kaffinu eftir góða máltíð.

Hráefni

í stuttu máli
Jólauppskriftir
Páskauppskriftir
Skammtar
ca 30
200 gr dökkt súkkulaði
1 1/2 dl rjómi
1 msk smjör
1-2 msk Misó (rautt) ef vill

Utan á trufflurnar
rifið hýði af appelsínu (ysta lagið)
pistasíuhnetur, saxaðar smátt
eða hvað eina sem okkur dettur í hug

Leiðbeiningar

Rjómi og smjörið hitað við vægan hita í potti. Súkkulaðið brytjað út í og hrært þangað til blandan verður mjúk og áferðarfalleg. Misoið sett út í síðast ef það er notað.
Blöndunni hellt í fat eða skál. Best er að hella henni í ílát svo hún verði sem þynnst, þá er auðveldara að vinna með hana.
Sett í kæliskáp í 2-4 klst. eða þangað til hún hefur stífnað.
Búnar til kúlur þannig að tekið er smá af massanum í teskeið og síðan notar maður hendurnar til að hnoða litlar kúlur.
Kúlunni velt upp úr því sem við viljum hafa utan á þeim.
Raðað á fat eða disk og geymdar í kæliskáp þangað til þær eru bornar fram.