Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Páskauppskriftir
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Bta í uppskriftasafn
Uppskriftasafnið mitt
Senda þessa uppskrift
Prenta þessa uppskrift

Trufflur II


Lýsing

Þessar eru úr ljósi súkkulaði.

Hráefni

í stuttu máli
Jólauppskriftir
Páskauppskriftir
Skammtar
ca 30
200 gr ljóst súkkulaði (má líka nota hvítt)
50 gr smjör
1 dl rjómi
1 msk rifið ferskt engifer eða annað krydd eftir því sem okkur lystir

Utan á trufflurnar
fínrifið súkkulaði, ljóst, dökkt eða hvítt
má líka nota kókosmjöl
eða smátt saxaðar heslihnetur eða valhnetur

Leiðbeiningar

Rjómi og smjör er hitað saman við vægan hita að suðu (má sjóða smávegis) í potti.
Tekið af hellunni og brytjað súkkulaði sett út í og hrært vel saman eða þangað til súkkulaðið hefur bráðnað að fullu.
Hellt í skál eða form og geymt í kæliskáp þangað til blandan stífnar.
Búnar til kúlur og þeim velt upp úr fínrifnu súkkulaði eða smáttsöxuðum hnetum eða því sem notað er utan á trufflurnar. 
Geymdar í kæli þangað til þær eru bornar ram.