| Safnhaugur |
|
|
|
Safnhaugur/gryfja ![]() Einföld og skilvirk leið fyrir lífrænan úrgang er að grafa hann niður. Þá eiga rætur, maðkar og aðrar lífverur greiða leið að vinna sitt verk eins og náttúran býður þeim og flýta þar með fyrir niðurbroti.
Byrjað er á að finna hentugan stað í garðinum. Staðsetningin ræðst hvar hentugast er án þess að mikið beri á því í garðinum eða eftir því hvað hverjum og einum hentar. Svo er að grafa hentuga stærð af holu: Opið fyrir miðju er um 35 sm á hvora hlið. Og yfir það er smíðað lok sem þarf að vera nokkuð efnismikið og þungt sem gerir það stöðugra, því flugur og fjórfætlingar eru fljótir að renna í kræsingarnar ef aðgangur er greiður. Forðast skal að setja ólífræn efni s.s. gler, vaxborinn pappír, plast og allt sem er ólífrænt og skaðlegt, í hauginn.Moltan er tilvalin í áburð fyrir gras og annan garðagróður. Heimild Landvernd: Nikulás Fr. Magnússon. |