| Kryddjurtir |
|
|
|
Þurrkað krydd er gott, en ferkst er enn betra. Þá þarf að huga að því snemma vors, en fljótlegra auðvitað að kaupa þær forræktaðar í pottum. En gætið að því að þessar jurtir eru fjöldaframleiddar og verða oft fyrir hálfgerðu áfalli þegar þær eru fluttar úr verslun í heimahús. Til að þær nái sér og verði ræktarlegar þarf helst að umpotta þeim, vökva og koma fyrir á sólríkum og björtum stað s.s. á svölum, í sólskála eða í gluggasyllu. Sumar kryddjurtir má að sjálfsögðu rækta í kössum og pottum í görðum þar sem skjól er gott. Eins þarf að klippa þær til að auka vöxt og með því móti laufgast þær betur og verða þéttvaxnari. Verum líka vakandi fyrir að tína visin blöð burt. Á þeim kryddjurtum sem blómstra s.s. oregano og basilikum þarf að klippa blóm af til að vaxtarþroski jurtarinnar stöðvist ekki. Auðveldar tegundir til ræktunar heima við: Basilika, oregano, timjan, sítrónumelissa, merían, rósmarín, kóríander, persilla, mynta, salvía og dill. Graslaukur má heita ómissandi í matargerð á sumrin og tilvalin að hafa í potti á svölum eða í matjurtagörðum. Camilla Plum, www.dr.dk Ræktað - kryddað – kokkað eftir Magnús Jónsson (Reykjavík: Ritskinna, 2006). Í henni er að finna mikinn fróðleik auk leiðbeininga um heimaræktun og notkun ferskra kryddjurta. |