|
Hér þarf að hafa í huga aldur veislugesta því mismunandi er hvað fólk borðar mikið. Börn og eldra fólk borðar oft minna en unglingar og yngra fólk.
Forréttir: Súpa 2-2 ½ dl Fiskur/kjöt 50-75 gr
Aðalréttir: Kjöt án beina 200-250 gr Kjöt með beinum 250-400 gr Fer eftir kjötteg. Kjöt í pottrétti 150-200 gr Kjöthakk 150-200 gr Fiskur án beina 200-250 gr Fiskur m/beinum 250-300 gr Fiskisúpa sem aðalréttur 150-175 gr fiskur, rækjur, humar o.þ.h. + grænmeti að auki
Meðlæti: Karftöflur 150-175 gr Soðið grænmeti 100-150 gr Hrátt grænmeti 150-180 gr Hrísgrjón/ósoðin ½ -1 dl Pasta/ósoðið 125 gr Sósa 1/2 - 1 dl Brauð 100-150 gr
Eftirréttir: Ís/búðingar 2 dl Terta 1 sneið Ostur 75-100 gr Ávextir/ferskir 50 gr Kransakaka 50 gr Konfekt 2-3 molar Kaffi/konfekt
Kaffi þar má gera ráð fyrir 45 gr af kaffi á móti 1 lítra af vatni í venjulega kaffivél en 70 gr í líter af vatni fyrir expressó kaffi. 1 l gefur 8 bolla og reikna skal 1-2 bolla á mann. Öl og gos er óhætt að reikna 2-3 glösum á mann, sem taka 2,5 dl hvert.
|