Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Leiðbeiningar og ráð Veisluhald Smáréttahlaðborð
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Smáréttahlaðborð Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Borð með úrvali smárétta á vel við þegar halda skal upp á merkisatburði og áfanga.

Varðandi magn í á að giska tveggja tíma boð er miðað við u.þ.b. 12 -15 bita á mann ef um er að ræða pinnamat, en 10 bitar gætu dugað ef boðið er upp á eina tegund af tertu (kransaköku) líka, sem getur verið mjög viðeigandi, fer auðvitað eftir tilefninu.

Litlar kjöt- eða fiskbollur (gott að úbúa fyrirfram og frysta)
Litlar samlokur m.d.t.lifrarkæfu, túnfisk- eða skinkusalati
Vatnsdeigsbollur fylltar með smurosti
Lítil horn með skinkufyllingu
Brauðrúllur með laxakremi
Döðlur fyllar með smurosti (bragðbættum m/líkjör)
Litlar gerbollur með ýmiskonar fyllingum
Smápítsur með pepperoni/skinku, sveppum o.fl.
Pylsubitar vafðir með beikoni og steiktir
Ferskt gænmeti skorið í bita t.d. sellerí, paprika, gulrætur, blómkál og agúrka og bera ídýfu með
Steiktir kjúklingavængir, kryddsósa borin með
Ostapinnar, skreyttir, mjúkir ostar, kex
Ostakúla, krydduð, auðvelt að gera fyrirfram
Melónukarfa, mjög fallegt á borði, fylla með jarðarberjum, melónukúlum og vínberjum
Súkkulaðihjúpuð jarðarber
Ostur á bakka til að skera og vínber og/eða niðursneitt grænmeti
Smáar kransakökur og/eða konfekt
Terta ef vill
Síðan eru ýmsar útgáfur af tapassnittum sem hægt er að útbúa fyrirfram.
Drykkir með smáréttahlaðborðum eru gjarnan létt vín, og/eða áfengislaust vín, freyðivín eða gosdrykkir.

Um að gera að láta hugmyndaflugið ráða bæði hvað varðar veitingar og borðskraut og aðra umgjörð veislunnar.