


| Geymsluaðferðir II |
|
|
|
Það skiptir máli hvernig gengið er frá matvælum í frystingu. Upplagt er að nota sér tilboð verslana og setja í frystinn.
Kæli- og frystivara: Góður frágangur er mikilvægur. Þegar geyma á kjöt, fisk eða aðra matvöru, hvort sem er í kæli eða frysti, þarf að geyma það í lofttæmdum umbúðum. Kjöt sem geymt er í plastpoka hefur einungis helming geymslutíma á við kjöt sem geymt er við lofttæmingu. Merkja ætti matvöru í frysti með innihaldi og dagssetningu. Ganga þarf frá kæli- og frystivöru sem allra fyrst eftir innkaup. Best er að geyma kjöt og fisk í lofttæmdum umbúðum á kaldasta stað ísskápsins. Kjöthakk og innmatur hafa takmarkað geymsluþol í kæli. Kjöt í sneiðum og bitum sem er í lofttæmdum umbúðum má geyma í 4 - 5 sólarhringa í kæliskáp. Heil kjötstykki t.d. hryggi og læri í lofttæmdum umbúðum má geyma í 5 - 6 sólarhringa. Kjöt er misvel fallið til frystingar. Hér skiptir máli er hve mikil fita er í kjötinu, hve hratt það frýs og að umbúðir séu þéttar og sem mest lausar við loft. Hentugast er að frysta í mátulegum einingum til heimilisnota. Mikil fita styttir geymslutíma. Frost stöðvar meyrnun í kjöti því er betra að láta það þiðna hægt í kæliskáp hafi það ekki verið fullmeyrnað áður enn það var sett í frysti. Ráðlegt er að frysta kjöt í litlum einingum, lausfrysta fyrst og pakka síðan í stærri pakkningar. Við hraða frystingu varðveitast bragðefni og safi betur. Leggja má plast eða smjörpappír á milli sneiða. Saltað og reykt kjöt geymist verr en nýtt kjöt. Gott er að geyma kjöt í dökkum umbúðum því ljós flýtir fyrir þránun fitu. Best er að þíða sneiðar í 2-3 sólarhringa og heil lambalæri og hryggi í þrjá til fimm sólahringa. Frosin kalkúnn þarf 2-3 sólarhringa í kæliskáp til að þiðna. Kjöt, magurt: 6 - 10 mán. Kjöthakk, feitt: 2 - 3 mán. Kjöt, magurt: 4 - 6 mán. Slátur, soðið: 6 - 8 mán. Slátur, ósoðið: 10 -12 mán. Fuglakjöt: 6 - 10 mán. Fiskur, feitur: 1 - 2 mán. Skelfiskur: 2 - 3 mán Graflax og reyktur lax geymist allt að einu ári í frysti ef hann er vel pakkaður inn, raðað þannig í frystinn að roðið snúi upp. Sumar tegundir af mat einkum fiskur þolir illa ljósið sem er í frystiskápum. Grænmeti: 10 - 12 mán. Ber: 10 - 12 mán. Brauð og kökur: 4 - 6 mán. Afgangar af elduðum mat: 2- 3 mán. |
Þjónusta Leiðbeiningastöðvar heimilanna er gjaldfrjáls og öllum opin:
mánudaga
þriðjudaga
og fimmtudaga kl. 10 -14
sími: 552 1135
Fyrirspurnir má einnig senda á
lh@leidbeiningastod.is