


| MSG |
|
|
MSG hefur verið mikið í umræðunni undanfarin misseri. En fyrir hvað stendur skammstöfunin MSG? Mono = gríski stafurinn einn Sodium = enska orðið yfir natríum Glutamate = stendur fyrir glutamatic þ.e. amínósýru Skoðum aðeins nánar úr hverju það er búið til og af hverju það hefur vakið viðbrögð neytenda. MSG (Mono Sodium Glutamate) eða þriðja kryddið, er unnið úr korni, þangi, sykurrófum o.fl. hráefnum og er notað til að ná fram auknu bragði í mat. Það er notað í ýmis krydd (t.d. Aromat og Picante), unnar matvörum eins og súputeninga, sósu- og súpuduft, einnig í lyfjum (gelatín) og sumum fæðubótarefnum. Einnig sælgætishlaupi, snakki og nokkrum ostategundum. Einna þekktust er notkun þess í austurlenskri matargerð. Hins vegar eru þeir til sem halda því fram að efnið sé skaðlaust sé það notað í litlu magni. ● MSG er hvítt kristallað duft svipað salti eða sykri. Það er bragðlaust en eykur bragð þess matar sem það er blandað í. ● Í dag er MSG nær eingöngu verksmiðjuframleitt (kemískt) með gerjunarferli, þ.e. sterkja, sykur rófur, og er því ekki lengur náttúruleg afurð. ● Ef innihaldslýsing stendur E621 þýðir það að varan innihaldi MSG ● Ef nefnd eru bragðaukandi efni (flavor-enhancers) má gera ráð fyrir að um MSG sé að ræða. ● Margir framleiðendur eru farnir að merkja sína framleiðslu: Inniheldur ekki MSG ● Þurrkuð laufkrydd eru ekki blönduð með MSG ● Glutamat er efni sem finnst í líkamanum og hann framleiðir 40 gr af á dag. Að neyta tilbúins Glutamats getur því ruglað skynjara í líkamanum sem stjórna framleiðslu þess. ● Móðurmjólk hefur 10 sinnum meira Glutamat innihald en kúamjólk. ● Ef í innhaldslýsingu stendur gær ekstrakt eða yeast extract þýðir það að vara innihaldi Glutamat. |
Þjónusta Leiðbeiningastöðvar heimilanna er gjaldfrjáls og öllum opin:
mánudaga
þriðjudaga
og fimmtudaga kl. 10 -14
sími: 552 1135
Fyrirspurnir má einnig senda á
lh@leidbeiningastod.is