


| Gæludýrahald |
|
|
![]() Að taka gæludýr á heimilið er framtíðarákvörðun, sem aldrei skyldi tekin í fljótheitum. Henni fylgir mikil ábyrgð og því nauðsynlegt að íhuga málið vandlega og gera sér grein fyrir því hvað dýrahaldi á heimilinu fylgir. Séu foreldrar hlynntir slíkri fjölgun í fjölskyldunni, þurfa allir meðlimir hennar að setjast á rökstóla og fara vel yfir hvað slík viðbót við fjölskylduna kallar á. Spurning eins og hvaða dýrategund er efst á óskalistanum, hundur köttur, hamstur, fugl eða fiskar? Hvaða tegund viljum við helst t.d. ef um hund eða kött er að ræða. Þar er um margt að velja og hinar ýmsu tegundir hafa mismunandi þarfir hvað varðar umönnun. Því er brýnt að skoða hvað hentar fjölskyldunni best. Alltaf skal hafa í huga að um langtíma skuldbindingu er að ræða. Kostnaður við dýrahald er þó nokkur. Hunda og ketti þarf að láta skrá , merkja og taka úr sambandi. Fóðurkostnaður er nokkur og eiga þarf flutningsbúr, matardalla, sandkassa, og aðrar nauðsynjar. Sömuleiðis kostnaður við lyf- og læknishjálp getur verið umtalsverður, t.d. við bólusetningar, ormahreinsanir og tilfallandi veikindi og ef dýrin verða fyrir slysum og þá gæti verið gott að hafa gæludýratryggingu. Hvernig dýr kemur helst til greina og hvernig útvegum við okkur það? Brýnum fyrir börnum að dýr eru EKKI leikföng, heldur lifandi verur sem finna til og þarfnast hlýju og öryggis. Það er engin hörgull á gæludýrum sem þafnast heimilis og góðra eigenda. Allt of margir kettir lenda á vergangi vegna vanrækslu eigenda og það búa heldur ekki allir hundar við öryggi og gott aðhald, því miður. Aldrei má skilja gæludýr eftir eftirlits- og umhirðulaus þegar heimilisfólk fer t.d. í frí.
Hjá Kattavinafélagi Íslands, sem rekur athvarfið Kattholt: www.kattholt.is
Hunda- og kattaræktendur eru fjölmargir og hægt að fá upplýsingar um þá t.d. Hundaræktarfélgi Íslands: www.hrfi.is
Margar gæludýraverslanir er að finna, sem selja t.d. kanínur, fugla og fiska. |
Þjónusta Leiðbeiningastöðvar heimilanna er gjaldfrjáls og öllum opin:
mánudaga
þriðjudaga
og fimmtudaga kl. 10 -14
sími: 552 1135
Fyrirspurnir má einnig senda á
lh@leidbeiningastod.is