Leiðbeiningastöð heimilanna

Þú ert hérna: Forsíða Neytendamál
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Vatn er gott og öllum nauðsynlegt Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

kranavatnÍ staðinn fyrir að skrúfa frá vatnskrananum og fá sér kalt, ferskt og gott vatni að drekka, kaupa margir rándýrt vatn á plastflöskum. Hljómar auðvitað frekar heimskulega þar sem við erum í raun að greiða fyrir plastflöskuna, miklu fremur en innihaldið. Og þar að auki fyrir plast, sem inniheldur eiturefnið Antimon, sem sannað þykir að leysist úr plastinu út í vatn, gosdrykki og ávaxtasafa, sem við neytum úr plastflöskum. Antimon mælist reyndar ekki mikið eða í hættlegu magni pr. flösku, en þegar drukkið er úr mörgum flöskum, jafnvel daglega árið um kring, getur efnið safnast fyrir í líkamanum.
Vísindamenn í Evrópu hafa rannsakað áhrif antimons í nokkur ár og er ekki fullsannað enn hvaða áhrif það hafi á fólk og umhverfi. En sumir þeirra hafa varað við efninu og telja það hafa bæði mengandi áhrif í náttúrunni, þegar plastið er urðað og síðast en ekki síst að það hafi áhrif til langs tíma á fólk, einkum þarmaflóru þess.
Í Japan er farið að nota títaníum í stað antímons, en það er talið hættulaust fólki.
Eitt enn sem hefur umhverfisáhrif og eykur m.a. loftlagsbreytingar, er að í framleiðslu á öllu þessu flöskuplasti fyrir drykkjarvörur, fer mikið eldsneyti.
Það eru ekki allar þjóðir sem njóta þeirra forréttinda að hafa hreint og gott vatn frá náttúrnnar hendi, eins og við eða þannig er það a.m.k. í flestum landshlutum. Við eigum að sjálfsögðu að nýta okkur það.

Í ástralska bænum Bundanoon í Ástralíu hefur vatn í plastflöskum verið bannað með lögum.  Áfyllanlegum flöskum var komið fyrir í staðinn og er bannið sennilega fyrsta sinnar tegundar í heiminum.

www.mbl.is 26.09.2009
www.adressa.no Prof.
Clemens Reimann

 
Hollt eða óhollt Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Eitt er að huga að hollustu - annað að fara út í öfgar.
Töfralausnir hafa sýnt sig að vera skammtímalausnir. Oftar en ekki bæta þær pyngju framleiðenda og seljenda, annað ekki.
Nánar...
 
Snyrti- og húðvörur Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Margt fólk, að ekki sé talað um ung börn, geta verið viðkvæm fyrir kemískum (tilbúnum) efnum sem notuð eru í snyrtivörur, ilmvötn og hreinsiefni.
Nánar...
 
E-efni Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Eru notuð í matvöru, sælgæti drykki o.fl. til að kalla fram ákveðinn lit, bragð, áferð og auka geymsluþol.
Nánar...
 
Gæðakannanir á heimilistækjum Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Hjá Leiðbeiningastöðinni er hægt að fá upplýsingar úr erlendum gæðakönnunum á flestum gerðum heimilistækja.
Þessar kannanir eru framkvæmdar af frjálsum og óháðum neytendasamtökum.

Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 2

Almennar upplýsingar

Þjónusta Leiðbeiningastöðvar heimilanna er gjaldfrjáls og öllum opin:

mánudaga þriðjudaga og fimmtudaga kl. 10 -14
sími: 552 1135

Fyrirspurnir má einnig senda á
lh@leidbeiningastod.is

Skjöl til útprentunar

excel.gif
Innkaupalisti
excel.gif
Magn á mann

Kvenfélagasamband Íslands

www.kvenfelag.is